Þrumur og eldingar.

Hérna liggur þrumukisinn og bíður eftir félögum til að heimsækja sig. Ert þú einn af þeim?

fimmtudagur, september 21, 2006

Vonsvikinn og reiður.

Æska þessa lands er á vonarvöl og það versta er að ég get ekki áttað mig á því hvort þetta hafi alltaf verið svona eða þá að þetta sé eitthvað nýtilkomið. Ég man samt alveg vel eftir því þegar maður var busi í áttundabekk skíthræddur við allt risa stóra liðið í tíunda sem hrellti mann á göngum skólans. Þá einmitt hafði árið áður verið slagur milli Valhúsaskóla og Hagaskóla. Ég varð vitni af því þegar ég var í sjöundabekk útí Grandaskóla. Þar voru menn með axir og menn í one on one.

Þessi kúltúr er svo slæmur að mig verkjar eigilega. Að sjá upptökur af eitthverjum slagsmálum sem allir virðast hvetja áfram lætur mér líða pínu fáránlega. Sérstaklega þó atvikið á myndbandinu þegar kærasta gæjans sem verið er að lemja stígur upp og reynir að toga gæjann ofan af honum og þá stökkva á hana tveir gæjar og stoppa hana. Hvað er í gangi?.....

Ég meina ég man alveg eftir tíundabekk, það eru nú ekki nema rúm tvö ár síðan en samt. Ég get bara ekki munað eftir neinu svona extreme. Ég skil samt alveg hópeflinguna sem þessu fylgir og að vera ekki partur af genginu er bara félagslegt sjálfsmorð en það sem vekur óhug minn er að ,,gengið" sé að stunda svona hluti. Taka upp slagsmál sem eru skipulög fyrir fram, veðja á sama slag og hvetja allt áfram. Svo blogga allir um þetta eins og þetta sé alveg frábært og jafnvel eins og þetta sé einn mest spennandi hlutur sem hefur komið fyrir þau.

En já téða síðu má finna hér: www.blog.central.is/poons
Myndbandið af þessum herlegheitum má svon finna hér: http://stebbi.freepgs.com/SLAGUR.mov

Lag gærdagsins: Nick Cave - Weeping song.

|

fimmtudagur, september 14, 2006

Skólastuð.

Fyrsta leiklistaræfingin er að hefjast.....og já.....leikfélagsflipparar.....og já.....mikið af nýnemum.......og já.......eitthvað annað.

Lag gærdagsins: Robbie Williams - Rudebox

|

mánudagur, september 11, 2006

Amazing comeback eða dauðahnykkur aldarinnaR?

Hola!

Ef eitthver kíkir hingað þá er ég stoltur, en ef ekki þá skil ég það fullvel. Kannski ætti ég bara að hætta þessari vitleysu, enda kominn á góða leið með það. En ég hef ekki alveg sagt mitt síðasta á þessum fjögurra ára bloggferli mínum.

Busaböll eru nú óðum að klárast og hafa þau frá mínum bæjardyrum farið vel fram. Busaball MH var einstaklega feitt og held ég bara að sjaldan hafi jafn mikið af fólki farið í sleik á sama stað á sama tíma. Cherrios. Svo daginn eftir það var það busaball MR þar sem snillingarnir í Sound Syndicate trylltu líðinn, án sjáanlegra vandræða.

Eitt finnst mér samt magnað hvað busadagar hafa furðuleg áhrif á mann. Ég held bara að ég hafi aldrei verið jafn vondur við eins marga og þennan dag. Að fólk skulu láta mann komast upp með þetta. Enginn andmælti mér þennan dag, enginn svo mikið sem efaðist um aðgerðir mínar og ég náði jafnvel að láta fólk níðast á hvort öðru.

Lag gærdagsins: Indeep - Last night a dj saved my life.

|

þriðjudagur, júní 13, 2006

Sumt fólk á bara skilið vonda hluti.

Ég veit vel að sem siðmenntaður maður þá á maður ekki að láta hefndarfýsn né reiði og hatur stjórna sér. En stundum er ekkert annað hægt. Þegar ógeðfellt fólk sem þjónar engum tilgangi fyrir samfélagið nema að vera byrði á samfélaginu og skattgreiðandi einstaklingum. Fólk sem flýgur hingað frá hinum enda heimsins bara til þess eins að vera aumingjar og níðmenni eiga ekkert gott skilið. Ég minni á að þessi grein mín er ekki ætlað sem eitthvað hatursbréf gegn nýbúum, heldur stríðsyfirlýsing gegn glæpalýð og óþokkum sem ráðast að fólki að tilefnislausu.

Vinur minn Jóel Brynjólfsson 18 ára nemi við Verzlunarskólann lenti einmitt í hópi af þess konar óþokkalýð. Þessi hópur sem af tilviljun voru allir innflytjendur ættaðir frá Asíu réðst að honum að því sem virðist tilefnislausu og veittist að honum með barsmíðum. Ekki nóg með að hafa verið fjórir til fimm saman gegn honum einum. Heldur unnu þeir einnig það níðingsverk að stappa á höfði hans þegar hann lá rotaður í jörðinni. Þessi lýður æstist bara við það að hann skyldi falla niður meðvitundarlaus. Góður vinur hans Jóels sem kom fyrstur að honum(fyrir utan þau fjölda mörgu vitni sem voru viðstödd) tekur hann í arma sér og hristir hann til og reynir að vekja hann án árángurs. Eftir örstutta stund ælir Jóel meðvitundarlaus blóði úr sárum sem hann hafði hlotið vegna innvortisblæðinga og blóðs sem hann hafði gleypt vegna högga árásarmannanna í andlit hans. Við það hlær einn af óþokkunum kvikindis hlátri líkt og honum liði eins og hann væri við þetta orðinn meiri maður fyrir vikið.

Þetta ömurlega pakk sem sýnir enga yðrun heldur hlær af gjörðum sínum á ekkert gott skilið. Hvað þá, þá silkihanska meðferð sem glæpalýður þessa lands viðrist fá. Hvers vegna er það svo að ef sakborningur er gripinn glóðvolgur við það að hérumbil drepa mann að honum er sleppt eftir yfirheyrslur? Hvar er réttlætið í því? Eiga menn ekki að gjalda gjörða sinna á þessu landi? Eiga menn að ganga lausir eftir að hafa ekki einungis hugsanlega örkumlað mann, heldur einnig sýnt enga yfirbót, gert vinum og ættingjum erfitt fyrir og sýnt ekkert nema óvirðingu við samfélag sem tók þeim opnum örmum. Hvað er að réttarkerfi Íslands?

Líklegast skýringin sem mér dettur í hug er bara sú að sökum fyrringar íslenskra pólitíkusa og fólks með völd í samfélaginu þá hefur réttar- og dómskerfið ekki náð að halda í við aukningu á ofbeldi og annarskonar glæpum sem virðast verða æ harðari. Við viljum alltaf meina að samfélagið okkar Ísland sé friðsælla og betra en önnur sambærileg samfélög. Að hér sé öruggt og gott að búa. En ef við lítum einungis á þá gríðarlegu aukningu á glæpum sem hefur orðið eftir að Ísland gerðist aðili að Schengen fer maður að klóra sér í hausnum. Ég man vel eftir forsíðufrétt í því misgóða blaði DV þar sem talað var um að Litháenska mafían sé að reyna að ná kjölfestu hérna og hver man ekki eftir Hells angels málinu. Það virðist sem sótt sé að litla góða fróninu okkar á fleiri en einn vígstöð, að utan jafnt sem innan. Glæpalýður veður uppi á meðan alþingismenn loka augum og eyrum. Þetta virðist vera ,,tag-line" í Sin city bíómynd, en svo er ekki.

Má útfrá umræðu minni fara að velta fyrir sér ýmsum deilum varðandi notagildi Schengen(sem mér finnst einkar lítið). T.d. veit ég að Bretland og Írland sem eru aðildaþjóðir að Evrópusambandinu hafa ákveðið að halda sig utan Schengen því þeir telja hag sinn betur settan utan þess sökum þeirrar staðreyndar að þetta eru bæði eyjaþjóðir. En málið sem ég vil tala um er Ísland og glæpir á Íslandi. Hrottaskapur og gróðofbeldisbrot aukast og ekki virðist sem peningar né úrræði séu til ráða til að berjast gegn ofbeldismönnum. En það versta þykir mér þó að ég er viss um að þetta mál mun taka tvö ár í vinnslu og eftir það munu mennirnir hljóta skilorðsbundinn dóm og fjársekt. Það mun ekki bæta fyrir vin minn sem liggur enn í annarlegu ástandi á sjúkrahúsi, næstum viku eftir árásina og mun hugsanlega aldrei ná sér alveg.


Lag gærdagsins: Similou - All This Love

|

miðvikudagur, maí 17, 2006

Congratz and thanks.

Takk fyrir mig allt þið svala fólk sem hristi skánkana við tónlistina sem ég og Maggi vorum að blasta, í staðinn fyrir að svtina með Palla. Þið eruð æði.

Og já, til hamingju öll. Nú er það bara sumar og sól næstu þrjá mánuðina.

Hvað ætlar þú að gera?

Lag gærdagsins: Til West & DJ Delicious - 'Same Man(án efa)

|

sunnudagur, maí 14, 2006

Þessi próf.

Ég get ekki verið duglegur lengur. Ég hef fengið fjandi nóg af því. Engu að síður á ég tvö próf eftir ogég er ekki byrjaður að læra fyrir þau. Ég kenni góðu veðri og almennum hressleika um. Fokkin hressleiki.

En ég mæli aftur sterklega með að þið mætið á lokaball MH og sjáið fyrsta gigg The Danceable Twins of the Turntable Funk Crew á Íslandi. Það verður eldhresst. Ég persónulega get lofað sjálfum´mérhörkustuði.

Lag gærdagsins: Shapeshifters - Incredible

|

mánudagur, maí 08, 2006

MARRFOKKIN´ LOKABALL!!

Dang in the bang!

Það er komið að LOKABALLI MH og þið vitið að það þýðir:

Skandalar
Fólk að afklæðast
Síðast dans Atla Márs
86 árgangurinn að gera allt vitlaust
Veðmál og prettir
Ölvun á við Eldborg 2001
Seinasti sénsinn til að reyna við manneskjuna sem maður er búinn að vera að gjóa augum til í fjögur ár!....já eða bara seinasta ár.

Svo mætum öll, verum hress og dönsum til að gleyma lélegum prófum.

Ballið er 16. maí

Páll óskar - Guðfaðir íslensks pops.

The Danceable Twins of the turntable funk crew - Hinir dansjúku house dj-ar frá Möltu komnir allaleið til okkar til að láta okkur dansa þökk sé bróðir magga.

Sjáumst öll í stuði!

Lag gærdagsins: The Knife - Heartbeats(Rex the dog remix)

|